Skólinn

Langholtsskóli var stofnaður haustið 1952 og hefur því starfað í rúma sjö áratugi. Skólinn er heildstæður fyrir nemendur í 1.- 10. bekk. Hann er einn fjölmennasti skóli borgarinnar með um 690 nemendur. Starfsmenn Langholtsskóla eru rétt um 100 talsins.
Langholtsskóli er heildstæður grunnskóli þar sem starfa um 740 nemendur í 1.-10. bekk og um 100 starfsmenn. Einkunnarorð skólans eru virðing, vellíðan og skapandi skólastarf.
Frístundastarf
Frístundaheimilið Glaðheimar er fyrir börn í 1. og 2. bekk, frístundaheimilið Dalheimar er fyrir börn í 3. og 4. bekk og félagsmiðstöðin Þróttheimar sjá um félagsstarf á mið- og unglingastigi.
Skólastarfið
Starfsáætlun
Hvað er framundan í Langholtsskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Langholtsskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi.
- Skoða skólanámskrá
Skólaráð
Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Meginhlutverk skólaráðs að vera vettvangur fyrir alla fulltrúa skólasamfélagsins til að eiga samráð um málefni skólans.
Fulltúar skólaráðs veturinn 2024-2025.
Móttökuáætlun
Matur í grunnskólum
Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.
Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Skólabragur
Í Langholtsskóla viljum við efla og byggja upp jákvæðan skólabrag. Við leggjum áherslu á ábyrgð, virðingu, tillitssemi, heiðarleika, vinsemd og samkennd og væntum þess að nemendur leggi sig fram í námi og taki þátt í að viðhalda jákvæðum skólabrag.
Í aðalnámskrá grunnskóla segir í kaflanum um skólabrag að nemendur þurfi að tileinka sér í daglegu lífi ýmsa þætti til þess að vera virkir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi þar á meðal samskiptahæfni, virðingu, umburðarlyndi auk skilnings á uppbyggingu lýðræðislegs þjóðfélags. Nemendur þurfa að læra að umgangast hvern annan og allt starfsfólk skóla í sátt og samlyndi, taka ábyrgð á eigin framkomu og hegðun og virða skólareglur.
Til að hjálpa okkur að viðhalda og styðja við góðan skólabrag höfum við sett fram skólareglur. Gullreglurnar okkar gilda alltaf og alls staðar og einnig eru reglur fyrir einstök svæði í skólanum.
Mat á skólastarfi
Markmið mats og eftirlits með gæðum starfsins er m.a. að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun.
Skólahverfi Langholtsskóla
Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun.
Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Langholtsskóla.