Stóra upplestrarkeppnin
Embla Björt Kristinsdóttir og Andy Hoang Hai Nguyen með kennurum sínum Aldísi Guðbrandsdóttur, Bryndísi Evu Ásmundsdóttur og Einari Helgasyni.
Stóra upplestrarkeppnin fór fram í Grensáskirkju síðastliðinn miðvikudag. Langholtsskóli átti tvo glæsilega fulltrúa úr 7. bekk þau Andy Hoang Hai Nguyen og Emblu Björt Kristinsdóttur. Þau stóðu sig frábærlega og Embla Björt stóð uppi sem sigurvegari keppninnar. Við óskum þeim til hamingju með frábæran árangur.